nega.bloggar.is
greyjiđ síminnKristín Ósk Jónsdóttir
Ég fékk mér nýjann síma í enda mai. rosalega nice síma, hevy gott að skrifa sms á hann...hann er nu ekkert svo nýr lengur.
Veit ekki hvað þessi sími minn á að ganga í gegnum mikið greyjið. ég finn eiginlega bara til með honum.
Var að koma heim úr vinnu um daginn, og er með símann í kjöltunni, stend upp og síminn dettur á götuna, og ég stíg á hann og held að það sé steinn og pæli ekkert meira í því, og labba svo bara áleiðis heim til binna, fatta svo að ég gleymdi símanum í bílnum, sem reyndist síðan ekki rétt, ég hringdi í hann, og þá lá greyjið á götunni :( og í því sem ég hleyp af stað til að taka hann upp, þá keyrir yfir hann bíll... og ekki i fyrsta sinn, því að ég var buin að sjá bíla keyra þarna yfir. hann er nu samt nokkuð heill, bara illa farinn, og þegar ég opna hann þá gæti ég brotið bakhlutann ef ég vildi það, en ég er að reyna mitt besta í að fikta ekki í því heheh svo ég eigi nú síma:p
Svo um daginn var hevy mikil rigning og ég heima hjá binna, með þakgluggann opinn og símann í gluggakistunni, síðan er ég að teygja mig í vatnsglas og fatta að það er allt rennandi blautt, og þar með síminn minn lika, greyjið. og svo í gær, þá fór ég í bíó með Dominiku og Stefaniu, og fór og fekk mer vatn, og þá missti ég símagreyjið ofan í vaskinn og beiiint undir bununa!
Og núna finnst honum mjög gaman að slökkva bara á sér þegar ég er búin að tala í símann.. gerist mjög oft.
Annars
er líka búið að skýra litlu stelpu Óla og Telmu, hún heitir Áróra Kristín og mér finnst hún bera nafnið afskaplega vel, :D flott og fallegt nafn:D
Til hamingju með það ;*
En nóg í bili.
Kveð Kristín Ósk
Ekki gott!Kristín Ósk Jónsdóttir
Greyjið Mundi gamli á Finnbogastöðum, hvað ég finn endalaust til með honum. hann átti nú ekki skilið að lenda í þessu greyjið! Eins góður maður og hann er, en hann er hress og sem betur fer er hann ákveðinn í að gefast ekki upp.!Því Nýtt Hús Skal Standa fyrir veturinn:D en húsið hans Munda (Guðmunds) brann til Kaldra kola á mánudaginn í Trékyllisvík á ströndum.!
Það vildi svo til að ég var á staðnum, og ofboðslega finn ég til með þeim. :(
http://www.trekyllisvik.blog.is/blog/trekyllisvik/
Húsið eftir brunann á 17 Júní.
Ég vil kvetja alla sem vilja og geta að hjálpa til.
Það er ekki gott að lenda í því að missa allt sem maður á, minningar, myndir, bókhald... dýr:( á aðeins fáum mínútum! fyrirboðalaust.
Gangi þér vel Mundi!
En lengra blogg nenni eg ekki að skrifa. ;)
Dominika og hulda eru í pólandi og ég sakna þeirra mest! hulda kemur samt heim i næstu viku:D en dominika i enda Júlí:( Addý systir að fara til Argentínu í næstu viku :( í tvo mánuði :( á eftir að sakna hennar mikið!!! Linda vinkona í Noregi að fara til Brasilíu aftur í næstu viku :´( sakna allra svo óendanlega ólýsanlega mikið þaðan!
allir að fara eitthvað eru einhverstaðar nema ég! :(
1 Ár!Kristín Ósk Jónsdóttir
Í dag er eitt ár liðið frá Andláti Góðrar vinkonu okkar vinkvennana.Guðbjört Lóa Sæmundsdóttir
Hún var yndislegasta manneskja sem þekkist, og var allt of góð til að deyja svona ung, litla blómarósin okkar, en ég samdi fyrir hana litið ljóð:
Lífsins draumar dagsins nýja
Liggja djúpt í vitund minni
Ríkir fegurð nýrra heima
Innst í sálu þinni
Ljós sem færðist himna á
Hlýtt er hjartað sátt
Í fögrum litum lýsir þú
Veginn okkar heimsins trú
Birtan sem að yfir þér skein
Lýsir okkar bjarta heim
Er minning þín í huga situr
Minnir helst á stjörnuglytur
Höf Kristín 4 jun ´08
Við söknum hennar öll, hún er engill.
Ekki gottKristín Ósk Jónsdóttir
Var komin með geðveikt blogg, en það það.. það ég er bara í sjokki það delitaðis.. veit að þettta er rangt skrifað en nu er ég pirruð út í tölfuna hans binna fyrir að hafa hent út blogginu minu!En til að taka smá saman hvað ég skrifaði í því:
- Veik
-B-vaktin best
-Krúnki
-bloggið hennar Telmu " www.telmi.bloggar.is "
-Brasilia.
Og svo eyddist allt! þannig að þetta verður að duga ykkur!
ADEUS
Kristín Ósk Jónsdóttir
ÉG verð eiginlega að segja að... það er alveg mjög langt siðan ég bloggaði síðast... alveg er ég að glata þessu, en já, ég hef nu samt fullt að segja!söngvakeppni framhaldsskóla var í gær, ég, hulda, dominika, svenni og Tinna horfðum á hana saman svo kom Davið seinna, og Ágústa og vinkona hennar:D það var svo gaman, drakk pínu, eða aðeins meira en pinu... og var bara góð þegar ég fór út og ætlaði ekki að drekka meira, en já jæja ég er ekki viss um að ég vilji telja tekila staupin sem ég tók, Ágústa was on fire!kom heim alveg mjög seint, náði að hálfrota mig, en það er allt í lagi með mig samt nuna:P
ég held samt að ég hafi verið að ljuga að ykkur, eg hef ekkert mikið að segja einfaldlega vegna þess að ég nenni þvi ekki nuna.
já!Kristín Ósk Jónsdóttir
En hvað með öll hin börnin sem missa mömmu sína, fá þau engan sjóð? Fint að stelpan erfir mömmu sina, liklega svona milllónir dala, er það ekki bara fínt? Tilhvers þá sjóðurin, svo hun verði alveg örugglega ekki auralaus í framtíðinni?Greyjið Dannielyn missti mömmu sina en það var barist um hana allir vildu vera pabbar hennar, kannski ut af öllum peningnum sem fylgir henni og kannski afþví að þeim þótti annt um hana og truðu þvi að þeir væru pabbar hennar.
Samt kemst ég ekki hjá þvi að hugsa um fleyri börn sem missa mömmur sínar, afhverju er ekki gerður sjoður handa þeim þar sem allur heimurinn getur hjálpað til? maður spyr sig.
Það er mjög gott að eiga mömmu, ég kæmist ekki af án minnar mömmu, greyjið börnin öll sem alast upp án annar hvors foreldrisins. Pabbi hjálpar lika mjög mikið, satt að segja kæmist ég ekki af án hvorugra. og er því fegin að hafa þau að.
Pabbi var tildæmis til staðar fyrir mig i kvöld, kom i heimsokn i nyju ibuðina mina sem er btw voða fin, og mér leið mjög illa og grét hjá honum heillengi. og það var mjög gott! mjög gott að hafa einhvern sem heldur bara utan um mann og leifir manni að losa bara flóðgáttirnar.
kristin
minnigar...Kristín Ósk Jónsdóttir
Já, hér sit ég heima hjá Ástrósu ein að horfa á mexikóska mynd, og var að lesa bloggið hennar eyrunar. www.eyrun.bloggar.is það var fínt, svo las ég í skoðanir, og þar kommentaði Lena, um gömlu dagana á Suðureyri hvað hun saknaði þess.Ég sakna Suðureyri í gamla daga.
Heitu sumardagarnir, þegar við fórum alltaf í sund um leið og sundlaugin opnaði og ´skemmtum okkur í stórulaugini í ýmsum leikjum, láum svo í Sólbaði í sundbolum (hehe) að fá sundbolafar:P á milli þess að hoppa út í laug til að verða blaut aftur og liggja svo lengur... svo fórum við heim sársvöng og fengum okur að borða:P
Allir útileikirnir á sumarróló eða inn á leikskóla eiginlega allir saman í leikjum til 10 - 11 á kvöldin þar til við vorum dregin inn á eyrunum liggur við.
Tjaldútileigurnar hjá mér addý og söru í garðinum hennar söru alveg svakalega spennandi:P Sara alltaf fyrst að sofna ;P hehehe Tombólurnar sem við heldum alltaf.
Eða þegar allir tóku sig til og fóru að vaða í tjörninni á Suðureyri það var mjög gaman og þegar okkur varð kalt þá var alltaf litli lækurinn sem rann úr sundlauginni heitur til að hlýja okkur, hehehe
Eða þegar ég addy og sara læddumst út kl hálf 6 um morguninn af því að við gátum ekki sofið og fórum að veiða síli. mamma kom brjáluð að leita af okkur, hehehe,
Hjólaleikirnir á leikskólanum þegar það var verið að steinleggja þar, við eiðinlöggðum allt fyrir greyjið manninum sem var að vinna við þetta, hehe, og fórum þá frekar í eltingarleik upp á múrklumpunum sem voru geymdir hjá leikskólanum... urðu nokur slysin þar.... hehh
Eitt sumarkvöldið þegar Sammi fékk gat á hausinn þegar við vorum öll að prófa nýju vegasöltin á leikskólanum, voru 2 sæta hvoru megin, Sammi sat aleinn einum megin á ytri endanum og við vorum svona... 15 á hinum endanum að athuga hvort hann gæti hoppað nógu hátt til að geta færst yfir í hitt sætið, endaði ekki vel, hehe...
Fjallgöngurnar hja mer og huldu, allaf skemmtilegar! :D er það ekki hulda ;P stundirnar okkar upp á flugvelli eða göngurnar okkar út ídal...
Eða þegar við vorum alltaf upp á félagsheimilinu öll á vetrarkvöldum að renna okkur niður, og einn daginn þegar ég og hulda runnum niður hærra megin en vorum nogu heppnar að ná að spyrna okkur smá og lenda í pínulitlum sjóskafl haha:D
Yfir á leikskólanum alltaf klassi;P allir með :D ég held ég sé búin að gleyma hvernig sá leikur er, hvenar á maður eiginlega að hlaupa í hring? þegar það er gripið?
SnúSnú, Svínabolti í frímínútunum i skólanum á veturnar, held samt að hann heiti eikkvað annað nuna....
útileigurnar hjá mér og Sólný, hahahaha gvuð hvað það var grillia:D löbbuðum alla leið út í selárdal! s., út allan súgandafjörðinn:D eða þegar við fórum yfir á Norðueyri;P slysó þurfti að sækja okkur:D
Tara, skrifstofuleikirnir okkar upp í fiskvinslu hjá pabba þinum:D verð samt eiginleg að segja að mannstu þegar þú bjóst á aðalgötunni, og við vorum uti að leika okkur, á rassaþotum, og við rifumst eitthvað og þú lamdir mig óvart með rassaþotunni þinni, og ég fekk svaaakalgar blóðnasir! við urðum svo hræddar að vera skammaðar og þú sérstaklega, að við spunnum upp sögu til að segja við mömmu þina og ömmu!
:D á vorin þegar amma var með jarðaberjagarðin sinn, þá stálum við alltaf berjum:D þau voru svo góóð!
OMG eða þegar við "Brutumst" inn til ömmu!!! hahahah ætluðum að fara í heimsókn til hennar en hun var ekki heima, og við funndum hálf opinn glugga og náðum að opna hann fórum inn um hann fegum okkur eitthvað tókum með okkur spil út og spiluðum svo í bakgarðinum hjá henni!!! hvað pabbar okkar voru reiðir! auðvitað fattaðit aallt! :D hahahaha
Ég Hulda og Karen löbbuðum alveg upp í fjall upp undir kletta, Karen missti lappirnar, og rúllaði niður liggurvið allt fjallið, og vá hú var heppin!!
Íþróttavöllurinn að vetri iðulega fullur af krökum að renna ser niður þessa bröttu brekku í keppni um hver kæmist lengst:D og hver væri fljótastur:P það var samt alltaf janleiðinlegt að þurfa að labba upp brekkuna..
Allar sæluhelgarnar á Norðureyri, út í staðardal, niðri við sjoppu, allt æðislegar minningar...
Eyrún, mannstu að við ætluðum að gysta í kofanum þínum um hávetur! gott plan:D haha
Ég og þórdís alltaf saman úti með trúðana okkar í kerrum, letum alltaf keyra okkur allt þvi við nenntum eki að labba haha:D
En eg gleymi aldrei steininum mínum í bakgarðinum hja ömmu, það var allltaf gott að koma í sjóðandi heitann bakgarðinn hjá ömmu og fá samlokur og eitthvað kalt að drekka í gegnum eldhusgluggann:D
Suðureyri er ógleymanlegt! í allastaði!
Allar mínar æskuminningar þaðan, ég elska þennan bæ, og örugglega hver sem ólst þar upp hugsar um suðureyri sem sína sönnu heimahaga, mér finst ég aldei vera komin heim, þegar ég fer vestur fyrr en ég fer á suðureyri.
KOSSSSS
(myndi koma með mynd, en einhvenvegin vill það ekki virka nuna.!)
alltaf gott ađ létta svona á sér :)Kristín Ósk Jónsdóttir
| Ætla að taka það fram að þetta blogg verður ekki lengra í bili. :) Kristin |
JájáKristín Ósk Jónsdóttir
Já, ég mætti í skólann í morgun eftir frekar umfangsmikla helgi:DÞegar ég mætti í næringarfræði í morgun kom ég inn og það voru ALLIR með tölvur, hver einasti maður með fartölvur og ég bara jæja, greyjið ég að vera ekki með tölvu.. settist hjá Agnesi, og segir hun við mig... Þú átt að sækja þér tölvu, ég bara haa? já þarna benti hún á skáp á hjólum ég fer og kíki í þennan skáp, þá var þetta bara fartölvuskápur! og á meðan tölvurnar voru inn í þessum skáp þá voru þær í hleðslu. Stórsniðugt! Mæli sko með þessu!
svo er ég bara spennt fyrir helginni, benny benassi ef ég fer, Binni ætlaði að reyna að muna að kaupa miða, en ef það gleymist, þá fer ég bara að vinna;) sem er alveg fínt líka, péningur:D
Ég maja og Dominika ákváðum að skella okkur á djammið á laugardaginn, dominika mín edru þó, því hun var að fara að vinna daginn eftir og þurfti að fara snemma heim.. sem síðan gerðist aldrei hehe hún fór bara beint ívinnu:P
en annars fórum ég og Maja heim um hálf ellevu takk. mjög fínt, mjög þreytt.!
;)
og hana nú!Kristín Ósk Jónsdóttir
Já veriði sælég varð eiginlega að kíkja inn á mbl.is hérna rétt áðan, og að venju fer ég í fræga fólkið, og enn og aftur sé ég greyn um það að amy winehouse sé AFTUR farin í Meðferð, og held það hafi bara verið í fyrradag sem að það stóð að teknar höfðu verið myndir af henni við það að dópa sig í hel, okey, hverjum er ekki nákvamlega sama. Amy er í dópi.
Sjitt, Amy er að fara í meðferð, Jeij.
Þar sem að Amy er fræg, endilega skulum við athuga hvað hún er að gera... úps hun var að taka í nefið.
Ef við pælum aðeins í þessu þá er það ekkert merkilegra að hun sé í dópi en hver annar, en auðvitað þar sem hún er fræg.. þá skulum við endilega fjalla um það aðeins meira, það vill enginn sem er í svona rugli að allur heimurinn viti það, sumir fara á fjalirnar með það. og þá geta þeir lika bara sjálfum sér um það kennt eins og Amy hun veit það alveg að það fylgja henni blaðamenn hvert sem hun fer.. af því að hún kann að syngja...
Só Wott að hun sé i dopi, helmingurinn af heiminum er að stunda þetta!
Það er alltaf miklu skemtilegra að gera svona frétt ef einhver er þekktur eins og Amy, Lindsey Lohan, Britney spears, talandi um hana greyjið það eru nu bara margir sem ekki eru eins frægir að ganga í gegnum nákvamlega sama og hún, og greyjið þær konur, samt er einhvernvegin merkilegra að Britney Litla eigi í vandræðum.... af því að húner fræg.
Hún á 2 syni, og samkvæmt því sem við lesum í blaðinu, þá er hún greynilega ekki nógu hæf móðir til að vera með þá.
og hvað er þá gert...
hugað að fleiri barneignum. úps ég missti forræðið yfir sonum mínum, ég vil ættleiða, ég vil eignast annað barn. greit. ef þú ert ekki nógu hæf móðir til að sinna þínum eigin börnum, afhverju ættiru þá að fá að ættleiða?
Skil það alveg að hún vilji eiga börn. en, hún virtist nú ekki nógu aktíf í að fá þá til sín þegar það átti að ákveða það í dómnum... góð leið að sína að maður myndi gera allt fyrir börnin sín, er að mæta ekkki fyrir rétt.
ef venjuleg manneskja gerði allt þetta, dómnum yrði ekki frestað svona oft, og það yrði bara strax látið hinn aðilann fá krakkann...
Og díses kræst, að mótmæla minningarathöfn umþennan ledger af því að hann lék samkynhneigðann mann... það er bara fáránlegt, á fólk sér ekki betra líf, ekki eins og hann sé samkynhneygður, og hvað með allt hitt samkynneygða fólkið í heiminum, á bara skíta yfir það afþví að það passar ekki inn í það líf hjá fólki sem heldur að það viti allt best og geti alt best? maður er bara eins og maður er, og þessi Ledger var nu bara leikari! held að það ætti nu bara að mótmæla svona vitleisingum!
Svo um daginn var ég líka að lesa greyn á mbl, um 2 konur og börn þeirra, sem höfðu verið skotin til bana í brjóstið og andlitið, hver getur haft svona á samviskunni. hver er svona ógeðslegur að gera eitthvað svona... þetta er bara ógeðslegt, það á ekkert að fangelsa svona menn, þeir læra nákvamlega eeekkert á því , svona ónytjunga ætti bara grafa 8 feet under!
er nu bara komið gott!
